Íslandsbanki hefur lækkað vexti á inn- og útlánum í kjölfarið á lækkun stýrivaxta Seðlabanka Íslands. Vextir á óverðtryggðum inn- og útlánum lækka um 0,5% en breytilegir vextir á óverðtryggðum húsnæðislánum lækka á sama tíma um 0,25%.
Íslandsbanki hefur lækkað
vexti
á inn- og útlánum í kjölfarið á lækkun stýrivaxta Seðlabanka Íslands. Vextir á
óverðtryggðum
inn- og útlánum lækka um 0,5% en breytilegir vextir á óverðtryggðum
húsnæðislánum
lækka á sama tíma um 0,25%. Eins og fram hefur komið býður Íslandsbanki viðskiptavinum sínum
höfuðstólslækkun
á erlendum og verðtryggðum húsnæðislánum, gegn því að lánunum sé breytt í óverðtryggð lán í íslenskum krónum. Síðan bankinn hóf að bjóða þetta úrræði í
nóvember
síðastliðnum hafa verið gerðar fjórar breytingar á vöxtum inn- og útlána. Breytilegir vextir þessara lána hafa því lækkað á þessu
tímabili
úr 7,5% í 5,75%, að teknu tilliti til afsláttar fyrsta árið.