Tyra Banks Hefur lokið við að skrifa fantasíuskáldsögu.

Hin íðilfagra og hæfileikaríka Tyra Banks hyggur nú á frekari landvinninga, en hún hefur nýlokið við að skrifa nýja fantasíuskáldsögu. Bókin hefur hlotið nafnið Modelland og flytur hún, að sögn Tyru, lesandann á ævintýrastað þar sem draumarnir rætast.

Banks hefur samið við útgáfufyrirtækið Random House um útgáfu þriggja skáldsagna, en áður hefur hún gefið út bókina Tyra's Beauty, Inside and Out. Modelland verður hennar fyrsta skáldsaga.