Sönggkonan Christina Aguilera hefur ákveðið að fresta fyrirhugaðri kynningarferð sinni, en ný plata frá Aguilera er væntanleg í júní.

Sönggkonan Christina Aguilera hefur ákveðið að fresta fyrirhugaðri kynningarferð sinni, en ný plata frá Aguilera er væntanleg í júní. Í viðtali við Opruh Winfrey í síðastliðinni viku sagðist Aguilera vera á leiðinni til Haíti þar sem hún kæmi til með að sinna hjálparstörfum.

„Ég vil kanna aðstæður á eyjunni og hjálpa til við að dreifa matarbirgðum. Ég hef áhuga á að heimsækja munaðarleysingjahæli og skóla. Ég vil leggja mitt af mörkum.“

Að hennar sögn er enn mikið verk óunnið á Haíti eftir hamfarirnar og sem einn af sendiherrum Sameinuðu þjóðanna geti hún ekki setið auðum höndum.