Leona Lewis Tekur lagið.
Leona Lewis Tekur lagið. — Reuters
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Það bíða eflaust margar stelpur með óþreyju eftir nýjustu Sex and the City- myndinni, en nú styttist í að hún verði frumsýnd. Engu er til sparað við að gera myndina sem glæsilegasta og þar er tónlistin ekki undanskilin.

Það bíða eflaust margar stelpur með óþreyju eftir nýjustu Sex and the City- myndinni, en nú styttist í að hún verði frumsýnd. Engu er til sparað við að gera myndina sem glæsilegasta og þar er tónlistin ekki undanskilin. Leona Lewis og Jennifer Hudson leiða saman hesta sína og syngja eitt af titillögum myndarinnar sem kallast Love Is Your Color . Fleiri stórstjörnur munu ljá myndinni rödd sína, þar á meðal Alicia Keys, Dido og hin gamalkunna Broadway-stjarna Liza Minelli. Þá hefur verið orðrómur á kreiki um að aðalleikkonur myndarinnar, þær Sarah Jessica Parker, Kim Cattrall, Kristin Davis og Cynthia Nixon, taki lagið saman.

Sex and the City 2 verður frumsýnd hérlendis hinn 4. júní næstkomandi.