Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,12 prósent í viðskiptum gærdagsins. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,14 prósent, en sá óverðtryggði um 0,05 prósent.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,12 prósent í viðskiptum gærdagsins. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,14 prósent, en sá óverðtryggði um 0,05 prósent. Velta á skuldabréfamarkaði nam 6,29 milljörðum króna og var lokagildi vísitölunnar 185,87 stig. Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði um 0,43 prósent í gær og endaði í 934,19 stigum. Marel lækkaði um 0,46 prósent og Össur um 0,54 prósent. bjarni@mbl.is