Platan Pottþétt 52 heldur fyrsta sætinu á Tónlistanum þessa vikuna með sínum margvíslegu smellum og í næsta sæti er plata með lögunum sem keppa í Evróvisjón í ár. Nú styttist í keppnina í Ósló og þeir sem ætla að kunna öll lögin utan að þegar að henni kemur verða sennilega að hlusta á plötuna daglega og jafnvel oft á dag.
Dikta og Jónsi eru í næstu tveimur sætum, en plata Diktu, Get It Together , hefur verið í 26 vikur á listanum, í efstu 30 sætum og þá margsinnis í fyrsta sæti.
Á Lagalistanum vermir lagið „Thank You“ efsta sætið, líkt og í síðustu viku. Lagið hefur verið á listanum í 14 vikur og situr sem fastast.
Reyndar eru lögin í efstu fjórum sætunum þau sömu og fyrir viku, í sömu röð. Það er því lítið um sviptingar á Lagalistanum, a.m.k. ekki í efstu sætum.