Handtökuskipun Sigurður Einarsson enn eftirlýstur af lögreglu.
Handtökuskipun Sigurður Einarsson enn eftirlýstur af lögreglu. — Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Hæstiréttur vísaði í gær frá máli Sigurðar Einarssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Kaupþings, en hann fór fram á ógildingu alþjóðlegrar handtökuskipunar.

Hæstiréttur vísaði í gær frá máli Sigurðar Einarssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Kaupþings, en hann fór fram á ógildingu alþjóðlegrar handtökuskipunar. Samkvæmt upplýsingum frá embætti sérstaks saksóknara vísaði Hæstiréttur til þess að kæruheimild væri ekki fyrir hendi.

Ekki náðist í Gest Jónsson, verjanda Sigurðar, í gær en í fyrradag var haft eftir honum í Morgunblaðinu að hann teldi skilyrðum ekki fullnægt til handtökuskipunarinnar, enda þyrfti að vera einhver rík nauðsyn til þess, sem hann teldi ekki hafa verið.

Handtökuskipunin frá sérstökum saksóknara var, sem kunnugt er, send til Alþjóðalögreglunnar Interpol, sem lýsti eftir Sigurði opinberlega þriðjudaginn 11. maí síðastliðinn.

Farbönn staðfest og framlengd

Í gær staðfesti Hæstiréttur farbannsúrskurð yfir Magnúsi Guðmundssyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings í Lúxemborg. Hann verður líkt og Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, og Ingólfur Helgason, fyrrverandi forstjóri Kaupþings á Íslandi, í farbanni til 28. maí nk.

Að endingu framlengdi Héraðsdómur Reykjavíkur farbann yfir Steingrími Kárasyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra áhættustýringar Kaupþings. Hann verður jafnlengi og aðrir í farbanni. Hæstiréttur á enn eftir að taka til meðferðar mál Hreiðars Más og Ingólfs en þeir kærðu farbannsúrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur. andri@mbl.is