Fimm voru fluttir á slysadeild með minniháttar meiðsl eftir harðan fjögurra bíla árekstur á Stekkjarbakka við Garðheima í Mjódd um kvöldmatarleytið í gærkvöldi.

Fimm voru fluttir á slysadeild með minniháttar meiðsl eftir harðan fjögurra bíla árekstur á Stekkjarbakka við Garðheima í Mjódd um kvöldmatarleytið í gærkvöldi.

Þrír sjúkrabílar voru sendir á vettvang sem og dælubifreið, vegna olíu sem hafði lekið á veginn. Ekki reyndist þörf á að beita klippum til að ná fólki út úr bílunum en menn frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins hreinsuðu upp olíuna.