Jón var fæddur á Siglufirði 10. júní 1940. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 20. maí 2010. Jón var sonur hjónanna Kristínar M. Aðalbjörnsdóttur húsmóður og verkakonu frá Steinaflötum á Siglufirði, f. 17. október 1919, og Þorsteins Einarssonar sjómanns og verkamanns, f. 3. maí 1908, d. 29. júlí1987. Jón var elstur þriggja bræðra. Bræður hans eru Björn, f. 1943, og Eyþór, f. 1946.

Jón hóf snemma búskap með fyrrv. konu sinni Elíngunni Birgisdóttur, dóttur Birgis Runólfssonar og Margrétar H. Pálsdóttur frá Siglufirði. Giftust þau árið 1962 og eignuðust fjögur börn saman. Börn þeirra eru: 1) Gunnar Þór Jónsson, f. 1960. 2) Anna Kristín Jónsdóttir, f. 1963, dóttir hennar er Guðbjörg Ellý Gústafsdóttir, maður hennar er Egill Sveinsson og dóttir hans er Áslaug Guðrún. 3) Sólrún Helga Jónsdóttir, f. 1965. Fyrrverandi eiginmaður hennar er Sigurður O. Sigurðsson, synir þeirra eru Davíð, f. 1988, og Jón Ragnar, f. 1998. 4) Margrét Hjördís Jónsdóttir, f. 1971, sambýlismaður hennar er Richefeu Olivier og sonur þeirra er Alexander Örn, f. 2000. Jón eignaðist dóttur í Vestmannaeyjum sem er Bylgja Eyhlíð, f. 1966, sambýlismaður hennar er Jósep Jóhannesson, dóttir hennar frá fyrri sambúð er Íris Arna, dætur Bylgju og Jóseps eru Thelma Sif og María Guðrún. Jón var um tíma í sambúð með Arndísi Sumarliðadóttur. Eignuðust þau einn son saman, sem er Sumarliði Þór Jónsson, f. 1976, kona hans er Unnur Jóna Guðbjörnsdóttir, f. 1980, dóttir hennar er Bryndís Una Hjartardóttir, f. 2003. Dætur hans úr fyrri sambúðum eru Helga Rún, f. 1999, og Sara Mist, f. 2003. Og saman eiga þau Mikael Mána, f. 2009.

Jón hóf sambúð 1980 með Kolbrúnu Ámundadóttur, d. 1991. Þau áttu þau saman litlu Aðalheiði Írisi, f. 1982, d. 1985. Kolbrún átti fyrir dóttur, Helgu Valdísi Jensdóttur Andersen, f. 1975. Maður hennar er Elmar Þ. Magnússon og börn þeirra eru Alex Breki, Aron Máni og Kolbrún Líf.

Jón ólst upp á Siglufirði og starfaði sem sjómaður og netamaður fyrri part ævinnar. Ungur hóf hann sjómennsku á togurunum Elliða og Hafliða frá Siglufirði, síðar á síðutogurunum frá Akureyri. Jón fór í fiskvinnsluskólann og lauk þaðan námi árið 1980. Hann vann ýmis störf samhliða námi og sinnti verkstjórn í litlum útgerðum á sumrin víðsvegar um landið, s.s. í Sandgerði, Grundarfirði, Þórshöfn og Vogum á Vatnsleysuströnd. Árið 1984 tók hann við verkstjórn hjá hraðfrystihúsinu Skildi á Sauðárkróki og var þar í 10 ár. Þá fór hann á frystitogara sem gæðaeftirlitsmaður og sinnti ýmsum öðrum störfum þar til hann veikist árið 1999, eftir það hefur hann meira og minna verið sjúklingur og dvaldist síðastliðið ár á dvalarheimilinu Sunnuhlíð Kópavogi þar sem hann lést á sjötugasta aldursári eftir margra ára veikindi. Jón var mikill skíðamaður á yngri árum og þótti mjög liðtækur dansari. Hann var hörkuduglegur til vinnu og mikill nákvæmnismaður og hlaut hann viðurkenningu þegar hann starfaði sem yfirverkstjóri hjá Hraðfrystihúsinu Skildi Sauðárkróki, fyrir gæðaframleiðslu árið 1986-1987.

Útför Jóns var gerð frá Fríkirkjunni í Reykjavík 28. maí 2010.

Nú legg ég augun aftur,

ó, Guð, þinn náðarkraftur

mín veri vörn í nótt.

Æ, virst mig að þér taka,

mér yfir láttu vaka

þinn engil, svo ég sofi rótt.

(Sveinbjörn Egilsson)

Elsku Summi, Solla, Magga, Stína og fjölskyldur, megi Guð vera með ykkur í gegnum þessa erfiðu tíma.

Þórunn Ester,

Arndís og Sturla.