Tilkynnt var í vikunni að rithöfundurinn Einar Már Guðmundsson hlyti viðurkenningu úr minningarsjóði danska rithöfundarins og róttæklingsins Carls Scharnbergs (1930-1995). Verðlaunin hlýtur Einar fyrir ritstörf sín og virka þátttöku í samfélagsumræðu. Í umsögn valnefndarinnar segir meðal annars:
„Einar Már Guðmundsson er einstakur maður. Í Hvítu bókinni sameinar hann skarpa samfélagsgreiningu og ljóðræna yfirsýn á óvenjulegan hátt, og í yfirstandandi deilu Íslendinga um leiðir út úr kreppunni er hann ötull talsmaður þess að fjármálafurstar og pólitíska valda- og fjölmiðlaelítan beri ábyrgð en ekki íslenska þjóðin.“
Verðlaunin, sem nema 10.000 dönskum krónum, verða veitt við hátíðlega athöfn 9. júní næstkomandi.
Hvítbókin hefur þegar verið gefin út í Þýskalandi og Noregi auk Danmerkur.