Guðmundur Ingi
Guðmundur Ingi
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Leikarinn Guðmundur Ingi Þorvaldsson mun fara með aðalhlutverkið í væntanlegu tónlistarmyndbandi þungarokkssveitarinnar góðkunnu Iron Maiden. Sveitin er með plötu í smíðum og hyggst leggja í heimstónleikaferð til að kynna gripinn.

Leikarinn Guðmundur Ingi Þorvaldsson mun fara með aðalhlutverkið í væntanlegu tónlistarmyndbandi þungarokkssveitarinnar góðkunnu Iron Maiden. Sveitin er með plötu í smíðum og hyggst leggja í heimstónleikaferð til að kynna gripinn. Platan mun heita The Final Frontier og tónleikaferðin sömuleiðis.

Guðmundur Ingi segist hafa þekkst boð um að leika aðalhlutverkið í afar metnaðarfullu myndbandi sveitarinnar við fyrsta lag sem gefið verður út á smáskífu. Nick Scott Studios og Darkside Animation muni sjá um gerð myndbandsins og áætlað að það fari í sýningar um allan heim í júlí.

Guðmundur Ingi segist ekki mega gefa neitt upp um efni myndbandsins en þó megi hann segja frá því að tvær persónur séu í myndbandinu, annars vegar „The Cleaner“ sem hann muni leika og svo sjálfur Eddie (sjá teikningu) sem allir aðdáendur Iron Maiden kannast við. Tökur á myndbandinu fara fram í næstu viku.