Leiða má að því líkur að nýju bankarnir hafi keypt yfirdrátt heimilanna af gömlu bönkunum með 40 prósenta afslætti, að sögn Breka Karlssonar, forstöðumanns Stofnunar um fjármálalæsi.

Leiða má að því líkur að nýju bankarnir hafi keypt yfirdrátt heimilanna af gömlu bönkunum með 40 prósenta afslætti, að sögn Breka Karlssonar, forstöðumanns Stofnunar um fjármálalæsi.

Seðlabankinn birti í síðustu viku bráðabirgðagögn um reikninga íslenska bankakerfisins og er það í fyrsta sinn frá bankahruni sem þessar tölur eru birtar.

Kemur þar fram að í september 2008 námu yfirdráttarlán hjá íslenskum bönkum 251,5 milljörðum króna. Þremur mánuðum síðar, eða í desember sama ár, nemur yfirdráttur í bókum bankanna 129,7 milljörðum króna. Seðlabankinn færir yfirdráttarlán ekki sem stöðu gagnvart viðskiptavinum bankanna, heldur eins og þau eru bókfærð í bönkunum. 24

252

milljarða kr.

yfirdráttarlán

í september 2008

130

milljarða kr.

yfirdráttarlán í desember 2008