Áskirkja.
Áskirkja.
Orð dagsins: Kristur og Nikódemus.
AÐVENTKIRKJAN:

Aðventkirkjan Reykjavík | Samkoma í dag, laugardag, kl. 11 hefst með biblíufræðslu fyrir börn, unglinga og fullorðna. Einnig er boðið upp á biblíufræðslu á ensku. Guðsþjónusta kl. 12. Manfred Lemke prédikar.

Aðventkirkjan Vestmannaeyjum | Samkoma í dag, laugardag, kl. 11. Boðið upp á biblíufræðslu fyrir börn og fullorðna. Guðþjónusta kl. 12. Bein útsending frá kirkju aðventista í Reykjavík. Manfred Lemke prédikar.

Aðventsöfnuðurinn Suðurnesjum | Samkoma í dag, laugardag, kl. 11 í Reykjanesbæ hefst með biblíufræðslu. Guðþjónusta kl. 12. Einar Valgeir Arason prédikar.

Aðventsöfnuðurinn Árnesi | Samkoma á Selfossi í dag, laugardag, kl. 10, hefst með biblíufræðslu fyrir börn og fullorðna. Guðsþjónusta kl. 11. Eric Guðmundsson prédikar.

Aðventsöfnuðurinn Hafnarfirði | Samkoma í Loftsalnum í dag, laugardag, hefst með fjölskyldusamkomu kl. 11. Þóra Jónsdóttir prédikar. Biblíufræðsla fyrir börn, unglinga og fullorðna kl. 11.50. Boðið upp á biblíufræðslu á ensku.

Samfélag Aðventista á Akureyri | Samkoma í Gamla Lundi í dag, laugardag, hefst kl. 11 með biblíufræðslu fyrir alla. Guðsþjónusta kl. 12.

AKRANESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir messar.

AKUREYRARKIRKJA | Fermingarmessa í dag, laugardag kl. 10.30. Prestar eru sr. Svavar A. Jónsson og sr. Jóna L. Jónsdóttir. Bókmenntamessa á sunnudag kl. 11. Sr. Jón A. Baldvinsson, vígslubiskup á Hólum, prédikar. Bók dagsins: Glíman við Guð eftir Árna Bergmann, lesari er Margrét Sigtryggsdóttir. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja, organisti er Eyþór Ingi Jónsson. Æðruleysismessa kl. 20. Prestur er sr. Jóna L. Jónsdóttir, Eiríkur Bóasson, Stefán Ingólfsson og Arna Valsdóttir leiða söng.

ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur R-eystra þjónar fyrir altari og prédikar, organisti er Krisztina Kalló Szklenár og kirkjukórinn leiðir almennan safnaðarsöng. Dr. Sigurjón Árni verður með með fyrirlestur kl. 10 um iðrun og fyrirgefningu. Kaffiveitingar á eftir.

ÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Sigurður Jónsson sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Ásdísi Pétursdóttur Blöndal djákna. Forsöngvari er Hjálmar Pétursson organisti Magnús Ragnarsson. Guðsþjónusta á hjúkrunarheimilinu Skjóli kl. 13 í umsjá sr. Sigurðar Jónssonar sóknarprests, organisti er Magnús Ragnarsson, forsöngvari Hjálmar Pétursson. Vandamenn heimilisfólks sérstaklega velkomnir og aðstoð þeirra vel þegin. Sjá askirkja.is.

BREIÐHOLTSKIRKJA | Sameiginleg göngumessa Breiðholtssafnaðanna. Safnast saman við Fella- og Hólakirkju kl. 10 og gengið þaðan til messu í Breiðholtskirkju sem hefst kl. 11. Prestur er sr. Bryndís Malla Elídóttir, kór Breiðholtskirkju syngur, organisti er Julian Isaacs. Léttar veitingar í safnaðarheimili eftir messu. Á eftir er rútuferð frá Breiðholtskirkju að Fella- og Hólakirkju.

BÚSTAÐAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11 á Þrenningarhátíð (trinitatis). Kór Bústaðakirkju syngur, organisti er Antonía Hevesí og prestur er sr. Pálmi Matthíasson. Kaffi á eftir.

DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur er sr. Gunnar Sigurjónsson.

DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr. Þorvaldur Víðisson prédikar, Dómkórinn syngur og organisti er Tómas Eggertsson. Hádegisbænir á þriðjudögum, kvöldkirkjan á fimmtudögum.

FELLA- og Hólakirkja | Fyrsta göngumessan af þremur í samstarfsverkefni kirknanna í Breiðholti. Gengið verður frá Fella- og Hólakirkju kl. 10 í Breiðholtskirkju þar sem guðsþjónusta fer fram á vegum Breiðholtssafnaðar. Sr. Guðmundur Karl og sr. Svavar Stefánsson fylgja hópnum frá Fella- og Hólakirkju.

FRÍKIRKJAN Kefas | Almenn samkoma kl. 16.30. Lofgjörð og boðið til brauðsbrotningar og kirkjugestir ræða orð Guðs. Boðið verður upp á leikaðstöðu fyrir börn.

FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fögnum sumrinu með því að hittast í kirkjunni kl. 20, hlýða á Guðs orð og syngja sumarlög. Fríkirkjukórinn og Anna Sigga leiða sönginn, Carl Möller leikur undir og sr. Bryndís Valbjarnardóttir flytur hugleiðingu.

GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11 með þátttöku Rótarýmanna.

GRENSÁSKIRKJA | Morgunmatur kl. 10, bænastund kl. 10.15. Messa kl. 11. Klara Hilmarsdóttir guðfræðingur predikar. Altarisganga og samskot til UNICEF. Messuhópur þjónar. Kirkjukórinn syngur og organisti er Árni Arinbjarnarson og prestur er sr. Ólafur Jóhannsson. Molasopi eftir messu.

GUÐRÍÐARKIRKJA Grafarholti | Messa kl. 11. Prestur sr. Karl Valgarður Matthíasson, organisti er Hrönn Helgadóttir. Kaffi á eftir.

HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari, hópur messuþjóna aðstoðar. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja, organisti er Hörður Áskelsson, kór Þrenningarkirkjunnar í Kristianstad í Svíþjóð syngur, stjórnandi er Joakim Olsson Kruse. Sögustund er fyrir börnin.

HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Organisti Douglas A. Brotchie og prestur er Tómas Sveinsson.

HJALLAKIRKJA Kópavogi | Messa kl. 11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar, félagar úr kór kirkjunnar syngja og leiða safnaðarsöng, organisti Jón Ólafur Sigurðsson. hjallakirkja.is.

HJÁLPRÆÐISHERINN Akureyri | Samkoma kl. 20 í umsjá Salvation Riders, ræðumaður verður sr. Gunnar Sigurjónsson.

HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík | Samkoma kl. 14. Ræðumaður er majór Knut Gamst og umsjón hefur majór Harold Reinholdtsen.

HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Samkoma kl. 11 og starf fyrir alla aldurshópa. Ræðumaður er Mike Fitzgerald. Alþjóðakirkjan kl. 14, samkomu á ensku, Helgi Guðnason prédikar. Vitnisburðasamkoma.

ÍSLENSKA Kristskirkjan | Barnastarfinu lýkur með vorhátíð kl. 11. Söngur, ratleikir, hoppkastali og sjónhverfingamaður kemur í heimsókn, einnig verður grilla. Tónlistarsamkoma kl. 20 í umsjá tónlistarfólks kirkjunnar. www.kristskirkjan.is

KAÞÓLSKA Kirkjan:

Péturskirkja, Akureyri | Messa kl. 11 og laugardag kl. 18.

Þorlákskapella, Reyðarf. | Messa kl. 11 og 19. Virka daga er messa kl. 18.

Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa kl. 10.30 og virka daga kl. 18.30 (nema föstudaga).

Karmelklaustur, Hafnarfirði | Messa kl. 8.30 og virka daga kl. 8.

Barbörukapella, Keflavík | Messa kl. 14.

Kristskirkja, Landakoti | Messa kl. 10.30 og á ensku kl. 18. Virka daga er messa kl. 18.

Maríukirkja við Raufarsel, Rvk. | Messa kl. 11 og virka daga kl. 18.30. Laugardaga er messa á ensku kl. 18.30.

Stykkishólmur | Messa kl. 10 og virka daga kl. 18.30.

Ísafjörður | Messa kl. 11.

Flateyri | Messa laugardag kl. 18.

Bolungarvík | Messa kl. 16.

Suðureyri | Messa kl. 19.

Riftún í Ölfusi | Messa kl. 16.

KOLAPORTIÐ | Messa á Kaffi Port kl. 14. Frá kl. 13.30 er fyrirbænum safnað og leikur Þorvaldur Halldórsson tónlist á meðan, Þorvaldur Víðisson miðborgarprestur leiðir stundina.

KÓPAVOGSKIRKJA | Tónlistarmessa kl. 11. Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari, kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Garðar Guðjónsson mun afhend Kársnessöfnuði Maríumynd. Fermingarbörn næsta vors og foreldrar þeirra eru sérstaklega boðuð og verður fundur eftir messuna um fyrirkomulag fermingarfræðslunnar.

LANGHOLTSKIRKJA | Vorhátíð. Messa og útimarkaður í umsjón Kvenfélagsins. Messan hefst kl. 11. Gamlir félagar úr Kór Langholtskirkju fjölmenna og syngja undir stjórn Jóns Stefánssonar, sr.Kristján Valur Ingólfsson predikar og þjónar ásamt sóknarpresti. Útimarkaður hefst kl. 12.15 á torginu við Langholtskirkju, einnig verða pylsur og kaffi til sölu. Hoppkastali fyrir börnin, Lúðrasveit Austurbæjar spilar, skátar kynna sumarnámskeið, Geir Ólafs, Þóra Einars, Graduale futuri og fleiri syngja.

LAUGARNESKIRKJA | Messa kl. 20. Sr. Hildur Eir Bolladóttir prédikar og kveður söfnuðinn en báðir prestarnir þjóna. Kór Laugarneskirkju syngur við stjórn Gunnars Gunnarssonar, hópur messuþjóna annast móttöku og lestur. Veitingar í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Kyrrðarstundir eru í hádegi á fimmtudögum út júnímánuð. Sjá laugarneskirkja.is

LINDAKIRKJA Kópavogi | Sunnudagaskóli kl. 11. Lokasamvera sunnudagaskólans og ef veður leyfir verður hann haldinn úti. Brúðugestir koma í heimsókn o.fl. Grillað á eftir. Guðsþjónusta kl. 14. Kór Lindakirkju syngur undir stjórn Óskars Einarssonar, Þorgils Hlynur Þorbergsson guðfræðingur prédikar og prestur er sr. Guðni Már Harðarson.

LÖGMANNSHLÍÐARKIRKJA | Messað kl. 14. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar, félagar úr Kór Glerárkirkju syngja undir stjórn Valmars Väljaots. Gestir frá Evangelisches Jugendwerk Reutlingen taka þátt í guðsþjónustunni.

MOSFELLSKIRKJA Mosfellsdal | Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Ragnheiður Jónsdóttir, organisti er Jónas Þórir og kór Lágafellskirkju syngur og leiðir safnaðarsöng.

NESKIRKJA | Messa kl. 11. Kór Neskirkju syngur, organisti er Steingrímur Þórhallsson, sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Þórhildi Ólafs. Messuþjónar. Aðalsafnaðarfundur Nessafnaðar er kl. 12.20. Messa á vegum Ísfirðingafélagsins og Félags Álftfirðinga og Seyðfirðinga kl. 14. Sönghópur Vestfirðinga leiðir söng, organisti er Bjartur Guðnason, sr. Örn Bárður prédikar og þjónar fyrir altari ásamt vestfirskum prestum. Kaffiveitingar á vegum félagana að lokinni messu.

SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 17, í umsjón unga fólksins.

SELJAKIRKJA | Gönguguðsþjónusta Breiðholtssafnaða. Lagt verður af stað frá Fella- og Hólakirkju kl. 10 og gengið þaðan, undir leiðsögn, í Breiðholtskirkju, þar sem guðsþjónusta hefst kl. 11. Almenn guðsþjónusta í Seljakirkju kl. 14. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson prédikar, kór Seljakirkju leiðir sönginn, organisti er Tómas Guðni Eggertsson.

SELTJARNARNESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Kammerkór kirkjunnar syngur, organisti er Friðrik Vignir Stefánsson, prestur sr. Hans Markús Hafsteinsson.

SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Sóknarprestur.

ÚTHLÍÐARKIRKJA | Fermingarmessa í dag, laugardag,kl. 15. Prestar eru Systkinin Sigrún Óskarsdóttir og Óskar Óskarsson frá Laugarvatni.

VEGURINN kirkja fyrir þig | Samkoma á fimmtudag kl. 20. Brauðsbrotning, lofgjörð, predikun og fyrirbæn. Högni Valsson predikar. Samkomur verða á fimmtudögum í sumar og hefst sumardagskráin fimmtudaginn 3. júní.

VÍDALÍNSKIRKJA | Messa kl. 11. Steinvör Ágústsdóttir syngur einsöng, félagar úr Kór Vídalínskirkju leiða safnaðarsönginn, organisti er Jóhann Baldvinsson. Barnagæsla verður í safnaðarheimilinu. Beðið fyrir nýjum sveitarstjórnum. Sr. Friðrik J. Hjartar þjónar. Molasopi eftir messu.

VÍFILSSTAÐIR | Guðsþjónusta kl. 14 í samkomusalnum á 1. hæð. Organisti er Jóhann Baldvinsson, kór Vídalínskirkju syngur, Sigríður Ingólfsdóttir les ritningarlestra, sr. Svanhildur Blöndal prédikar og þjónar fyrir altari.

(Jóh. 3)

(Jóh. 3)

Höf.: (Jóh. 3)