Nú í sumarbyrjun munu kirkjurnar í Breiðholti hafa frumkvæði að gönguferðum um Breiðholtið sem eiga það sameiginlegt að byrja og enda við kirkju. Þetta er annað árið í röð sem farið er í slíkar göngur enda voru góðar viðtökur í fyrra.

Fyrsta gangan verður á morgun, sunnudag. Gengið verður frá Fella- og Hólakirkju kl. 10 og gengið að Breiðholtskirkju. Kl. 11 verður messað í Breiðholtskirkju og boðið upp á hressingu að messu lokinni. Sunnudaginn 6. júní verður gengið frá Breiðholtskirkju kl. 19 til messu í Seljakirkju sem byrjar kl. 20. Síðasta gangan verður sunnudaginn 13. júní. Þá verður lagt af stað frá Seljakirkju og gengið til kvöldmessu í Fella- og Hólakirkju sem hefst kl. 20. Ekið verður með göngufólk aftur að þeirri kirkju þar sem göngurnar hófust þegar allir hafa þegið hressingu.