Fundur strandríkja um stjórnun makrílveiða verður haldinn í London um miðjan október. Tómas H. Heiðar, formaður samninganefndar Íslands, segir „alveg ljóst að menn verða að gefa eftir ef það á að nást samkomulag þar sem kvótarnir samanlagðir eru langt umfram það sem Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) hefur ráðlagt.“
Í næstu viku verður haldinn hér á landi tvíhliða fundur Íslendinga með fulltrúum Evrópusambandsins og er hann haldinn að beiðni ESB.
Tómas segir að sjónarmiðum Íslands hafi verið komið skýrt á framfæri undanfarið og verið gert hærra undir höfði í erlendum fjölmiðlum upp á síðkastið. 16