Í dag stendur Femínistafélag Íslands fyrir opnum fundi þar sem fjallað verður um hvort nú sé þörf fyrir nýtt kvennaframboð eða kvennalista í anda þeirra sem voru á seinustu öld.
Í dag stendur Femínistafélag Íslands fyrir opnum fundi þar sem fjallað verður um hvort nú sé þörf fyrir nýtt kvennaframboð eða kvennalista í anda þeirra sem voru á seinustu öld. Frummælendur verða Katrín Anna Guðmundsdóttir, fyrrum talskona Femínistafélagsins, Þórhildur Þorleifsdóttir, formaður jafnréttisráðs, og Elísabet Jökulsdóttir rithöfundur. Fundurinn verður haldinn í Friðarhúsinu og hefst kl. 20.