Póstur Væntanlega dettur svarið í póstkassa ESA í þessari viku.
Póstur Væntanlega dettur svarið í póstkassa ESA í þessari viku. — Morgunblaðið/Zoë Robert
Íslensk stjórnvöld hafa ekki enn svarað áminningarbréfi ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA, um Icesave-reikningana. Fresturinn rann út 1. ágúst en var framlengdur til 8. september. Aftur veitti ESA frest en nú var það gert með óformlegum hætti.

Í áminningarbréfinu kemur fram sú niðurstaða ESA að íslensk stjórnvöld hafi brotið gegn samningnum um Evrópska efnahagssvæðið með því að greiða ekki lágmarksinnistæðutryggingu til þeirra sem áttu fé inni á Icesave-reikningum Landsbankans. Bréfið var sent í lok maí og var svarfrestur tveir mánuðir. Í svari Kristrúnar Heimisdóttur, aðstoðarmanns efnahags- og viðskiptaráðherra, við fyrirspurn Morgunblaðsins, segir að ESA hafi veitt íslenskum stjórnvöldum frest „fram undir miðjan mánuð“ m.a. vegna þess að nýr ráðherra hafi komið að málaflokknum.

Eins og kunnugt er tók Árni Páll Árnason við embætti efnahags- og viðskiptaráðherra 2. september sl. Kristrún sagði að stjórnvöld myndu nota tímann til að gera svarið sem best úr garði. runarp@mbl.is