* Rokksveitin Who Knew mun halda tónleika 25. september næstkomandi á hinum vinsæla rokkbar Magnet í Berlín.
* Rokksveitin Who Knew mun halda tónleika 25. september næstkomandi á hinum vinsæla rokkbar Magnet í Berlín. Sveitin er á mála hjá berlínsku útgáfufyrirtæki, en það sem meira er, þá mun kanadíska gæðasveitin Wolf Parade leika á þessum tónleikum, og einnig FM Belfast (sem eru aðalnúmerið ásamt Wolf Parade, ef marka ber auglýsingu). Who Knew eru undir þó nokkrum áhrifum frá hinni kanadísku sveit og hafa Who Knew-menn ábyggilega fagnað gríðarlega þegar þessum áfanga var landað.