Miðborgarstemningar
Miðborgarstemningar — Morgunblaðið/Golli
Ekki er öllum gefið að leika á hljóðfæri jafn vel og þessum unga gítarleikara sem lét tónana flæða um Laugaveginn í gær. Ung dama fylgdist enda með honum full aðdáunar og hver veit nema hún feti í fótspor hans einn daginn.

Gítarleikarinn hefur þó líklega fljótlega þurft að flýja því síðar um daginn opnuðust himnarnir yfir höfuðborginni svo vart var hundi út sigandi, hvað þá götulistamönnum.