Hin 24 ára gamla söngkona Lady Gaga kom sá og sigraði á MTV-verðlaunahátíðinni í Los Angeles í fyrrinótt en þaðan fór hún sátt heim með 8 styttur.
Hin 24 ára gamla söngkona Lady Gaga kom sá og sigraði á MTV-verðlaunahátíðinni í Los Angeles í fyrrinótt en þaðan fór hún sátt heim með 8 styttur. Allra augu beindust að þessum hæfileikaríka rugludalli enda var klæðnaður hennar skrautlegur eins og við var að búast.
Fleiri en Gaga fóru heim með styttur og má þar meðal annars nefna rapparann Eminem, smástirnið Justin Bieber og hljómsveitirnar Florence + the Machine og Muse.