Höfuðstöðvar Jón Ásgeir Jóhannesson sagði í eiðsvörnum vitnisburði að í október 2008 hefðu skuldir Baugs verið 920 milljónir punda umfram eignir.
Höfuðstöðvar Jón Ásgeir Jóhannesson sagði í eiðsvörnum vitnisburði að í október 2008 hefðu skuldir Baugs verið 920 milljónir punda umfram eignir. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Fréttaskýring Þórður Gunnarsson thg@mbl.is Svo virðist sem umfangsmikil endurskipulagning Baugs á árinu 2008 hafi aðallega verið til þess fallin að fresta hinu óumflýjanlega – gjaldþroti félagsins.

Fréttaskýring

Þórður Gunnarsson

thg@mbl.is

Svo virðist sem umfangsmikil endurskipulagning Baugs á árinu 2008 hafi aðallega verið til þess fallin að fresta hinu óumflýjanlega – gjaldþroti félagsins. Skiptastjóri þrotabús félagsins hefur höfðað fjölda riftunarmála á ráðstöfun eigna Baugs áður en félagið var tekið til gjaldþrotaskipta. Salan á Högum til 1998 ehf. er meðal annars talin hafa farið fram á þeim tímapunkti er félagið var þegar orðið ógjaldfært – það er að segja, eignir félagsins dugðu ekki fyrir skuldum.

500 milljón punda eigið fé

Morgunblaðið hefur undir höndum hálfsársuppgjör Baugs fyrir árið 2008, en reikningurinn er ekki undirritaður af endurskoðanda. Stjórn félagsins samþykkir hins vegar reikninginn 7. október 2008. Samkvæmt reikningnum voru skuldir félagsins þá tæplega 1,3 milljarðar punda, en eignir tæplega 1,8 milljarðar punda. Eigið fé félagsins er því bókfært 500 milljónir punda um mitt ár, en þar af er víkjandi lán 166 milljónir punda og yfirverð hlutafjár 133 milljónir punda. Handbært fé Baugs um mitt ár 2008 var rúmlega 14 milljónir punda, eða 2,2 milljarðar króna. Heimildir Morgunblaðsins herma að þrotabú Baugs telji eignir í mörgum tilfellum stórlega ofmetnar í efnahagsreikningi félagsins, sem orsaki ógjaldfærni félagsins. Þar af leiðandi hafi stjórnendum ekki verið heimilt að selja Haga úr félaginu á þessum tíma. Fram kom í Morgunblaðinu 2. febrúar síðastliðinn að þrotabúið teldi að félagið hefði ekki verið greiðslufært í mars 2008, þegar ekki var greitt af skuldabréfaflokki sem var á gjalddaga. Raunar getur verið erfitt að úrskurða hvort félag er greiðslufært eða ekki, þegar sífellt er endurfjármagnað með nýjum lánum, þrátt fyrir að lítið sem ekkert reiðufé sé fyrir hendi til að standa skil á skuldbindingum. Um þetta atriði snýst, meðal annars, ágreiningur þrotabús Baugs og Fjárfestingafélagsins Gaums, um söluna á Högum til 1998 ehf., sem var að mestu í eigu Gaums.

Áfram keypt meira

Þrátt fyrir að veruleg áhöld séu uppi um stöðu Baugs allt aftur til ársbyrjunar 2008, var ekki að sjá að stjórnendur félagsins hygðust draga saman seglin. Þannig kom fram að Baugur hefði boðið í bresku verslanakeðjuna Moss Bros í febrúar 2008. Fram kom í fréttum að félagið hygðist greiða jafnvirði 5,4 milljarða króna fyrir fyrirtækið, miðað við þáverandi gengi krónunnar. Síðar um haustið, örskömmu fyrir hrun bankanna, reyndi Baugur að kaupa bresku verslanakeðjuna Woolworths á 100 milljónir punda.

Jón Ásgeir Jóhannesson sagði í eiðsvörnum vitnisburði sínum fyrir dómstólum í Bretlandi að í október 2008 hefðu skuldir Baugs verið 920 milljónir punda umfram eignir.

Geta endurskuldsett sig

„Það sem tók kannski tvo klukkutíma að fá afgreitt í bankakerfinu, hvort sem var hér heima eða erlendis, fyrir ári eða svo, tekur líklega um tvær vikur í dag að fá í gegnum kerfið og því er það miklu meiri vinna og tími sem fer í fjármögnun og endurfjármögnun fyrirtækja, en gerði áður. Blessunarlega þá eru rekstrarfélögin okkar mjög lítið skuldsett, þannig að um leið og birtir til á þessum markaði, þá hafa þau tækifæri til þess að endurskuldsetja sig og borga arð til móðurfélagsins,“ sagði Jón Ásgeir Jóhannesson í samtali við Morgunblaðið 29. júní 2008. „[É]g tel alveg ljóst að margir eigi eftir að heltast úr lestinni á næstu vikum og mánuðum, en við erum alveg staðráðnir í að vera ekki í þeim hópi,“ sagði Jón í sama viðtali. thg@mbl.is

„Staðan aldrei sterkari“

„Ég myndi áætla að safn Baugs skilaði um 500 milljónum punda í EBITDA [hagnaður fyrir skatt, fjármagnsliði og afskriftir] á ári og væri skuldsett fyrir rúmlega tvisvar sinnum það að meðaltali. Ég held að það sé óhætt að fullyrða það að staða okkar í Bretlandi hefur aldrei verið sterkari en hún er núna,“ sagði Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs, í samtali við Viðskiptablaðið 23. janúar 2008. Gunnar sagði jafnframt í samtali við Stöð 2 í apríl sama ár, að endurskipulagning félagsins, sem fól í sér sölu eigna milli tengdra félaga, væri ekki til þess að fegra stöðu félagsins. Uppbygging félagsins í skugga Baugsmálsins, hefði „tekist gríðarlega vel til,“ og að Baugur væri vel statt félag. Í júlí sama ár seldi Baugur allar sínar innlendu eignir, og tilkynnt var að heimilisfesti félagsins skyldi flytjast til útlanda.

thg@mbl.is