Erla Valdimarsdóttir fæddist í Reykjavík 16. ágúst 1926. Hún andaðist á heimili sínu 6. september 2010.

Foreldrar hennar voru Valdimar Júlíus Helgi Sigurðsson skósmiður, f. 22. júlí 1894, d. 1. júní 1977, og Una Ágústa Bjarnadóttir, f. 18. ágúst 1893, d. 1. nóvember 1977. Systkini hennar: Bjarni, f. 1919, d. 1976, Jóhann, f. 1923, Esther, f. 1928.

Erla giftist 16. janúar 1946 Svavari Sigurðssyni, verkstjóra, f. 23. júní 1918, d. 24. júlí 1979. Börn þeirra eru: 1) Valdimar, f. 13. júli 1950, kvæntur Dorothe Ólöfu Gunnarsdóttur, börn þeirra eru: a) Brynhildur Gunnur, gift Sigurjóni Má Kjartanssyni, börn þeirra eru Sandra Sif og Gunnar Már. b) Yrsa Eleonora, gift Arnari Sæbergssyni, börn þeirra eru Sara Lea og Óttar Leví. c) Gunnar, giftur Vilborgu Grétarsdóttur, börn þeirra eru Ísabella og Orri. d) Erla. 2) Hjördís, f. 27. september 1952, gift Skúla Sigurðssyni, börn þeirra eru: a) Sigurður Svavar, giftur Tone Lise Ommedal, börn þeirra eru Svavar Skúli og Lilja Marie. b) Erla Gréta, gift Heimi Þór Andrasyni, börn þeirra Alexander Bjarki, Eva Dís og Kristófer Gauti. c) Sigfús Gauti, í sambúð með Ragnheiði Ósk Eggertsdóttur, synir þeirra Eggert Logi og óskírður. 3) Sigurður, f. 17. janúar 1961 kvæntur Erlu Eyjólfsdóttur, synir þeirra er: a) Eyjólfur, giftur Hönnu Steinunni Steingímsdóttur.

b) Svavar, í sambúð með Telmu Björt Harðardóttur, sonur þeirra er Aron Daði. c) Davíð.

Æskuheimili Erlu var á Njálsgötu 52a, en þar bjó hún ásamt foreldrum sínum og systkinum allt þar til þau Svavar hófu búskap. Fyrstu árin bjuggu Erla og Svavar á Ljósvallagötunni, en lengst af bjuggu þau á Kambsvegi 1, að undanskildum átta árum sem þau bjuggu í Þorlákshöfn. Auk húsmóðurstarfa sinna starfaði Erla hjá Morgunblaðinu og í Arnarhvoli. Eftir að Svavar lést fluttist Erla að Álfheimum 70 og bjó þar til dánardags. Erla var mikil fjölskyldumanneskja og var barnabörnum og barnabarnabörnum sínum góð amma.

Útför Erlu fer fram frá Áskirkju í dag, 14. september 2010, og hefst athöfnin kl. 11.

Tengdamóðir mín Erla Valdimarsdóttir lést á heimili sínu að morgni 6. september 2010. Andlát Erlu bar brátt að en hún hafði þurft að glíma við ólæknandi æxli í baki og bar hún sig alltaf vel og kvartaði aldrei, en enginn veit sína ævi fyrr en öll er.

Ég kynntist Erlu þegar fjölskylda hennar bjó í Þorlákshöfn upp úr 1969, eiginmaður Erlu, Svavar tók að sér verkstjórn í Fóðurblöndunni í Þorlákshöfn. Ég bar alla tíð mikla virðingu fyrir Erlu, hún var ákveðin kona og bauð af sér mikinn þokka, hún var tignarleg, alltaf hugguleg í klæðaburði. Öll árin sem Erla bjó í Þorlákshöfn vann hún sem fiskvinnslukona, eftir að Erla og Svavar fluttu til Reykjavíkur vann hún hjá Morgunblaðinu og í eldhúsi í Arnarhvoli.

Þegar við Hjördís eignuðumst okkar fyrsta barn, Sigurð Svavar, þá passaði Erla drenginn á meðan við unnum úti, ári seinna fæddist svo Erla Gréta og var hún líka mikið hjá afa símum og ömmu. Á þessum tíma bjuggum við Hjördís á Njálsgötu. Það var fastur liður að fara til afa og ömmu inn á Kambsveg í hádeginu á laugardögum, það var alltaf jafn vinalegt að koma þangað, ef við hjónin vorum að gera eitthvað annað var allaf spurt hvort við ætluðum ekki að kíkja inn hjá afa og ömmu. Eftir að við Hjördís fluttum frá Eskifirði, en þar bjuggum við í 15 ár, endurnýjuðust okkar kynni og urðu mun meiri en þegar við vorum svona langt í burtu. Sigurður Svavar var þá fluttur til Noregs en Erla Gréta og Sigfús Gauti fluttu með okkur til Reykjavíkur. Frá 1995 voru heimsóknir okkar Hjöddu ófáar til Erlu, það var eins og áður, fastur liður að koma við á laugar- og eða sunnudögum og fá sér kaffi og brúntertu. Við hjónin ásamt börnum okkar og fjölskyldum þeirra og alnöfnu Erlu, þ.e. dóttir Valda, fórum í ógleymanlega ferð til Búlgaríu þar sem hún hélt upp á 80 ára afmæli sitt. Sú ferð er okkur öllum ógleymanleg og hefði ég ekki vilja missa af þeirri skemmtun sem hún gaf mér og mínum. Við hjónin fórum til Noregs til sona okkar sem þar búa í nóvember 2009 og fór Erla þá með okkur, en þar sem hún átti erfitt með gang var þetta henni mikils virði. Erla hafði mikið gaman af því að vera með barnabörnum og barnabarnabörnum sínum í Noregi.

Einn af síðustu dögum Erlu var laugardagurinn 4. september uppi í Maríubaug, en þar héldu Erla Gréta og Heimir upp á afmæli Alexanders, Evu Dísar og Kristófers Gauta. Amma Erla var mjög þokkaleg til heilsunnar þó svo að hún hefði nokkrum dögum áður axlarbrotnað. Seinna um daginn höfðum við samband við Sigfús Gauta í gegnum Skype þar sem Erla amma fékk að sjá yngsta barnabarnbarn sitt sem fæddist 13. júlí, það er mikil gleði í okkar huga að Erla amma gæti notið þeirrar stundar.

Nú er Erla kominn á þann stað sem á fyrir okkur öllum að liggja að enda á. Minning um þau Svavar og Erlu mun aldrei líða úr huga mínum. Erlu verður sárt saknað af minni fjölskyldu, ekki síst af barnabarnabörnum sem eru nú dreifð um heiminn.

Ég kveð tengdamóður mína með söknuði og votta fjölskyldu hennar mína dýpstu samúð.

Guð blessi ykkur öll.

Skúli Sigurðsson

Elskuleg tengdamóðir mín Erla Valdimarsdóttir er látin og því komið að kveðjustund. Erla var einstaklega yndisleg kona, sjálfstæð, dugnaðarforkur, hjálpfús og einstaklega barngóð, fátt gladdi hana meira en lítil börn. Eitt er það sem lýsir því vel hversu góð kona Erla var, það er að börn systra minna kölluðu hana alltaf ömmu Erlu því þeim fannst hún svo notaleg og góð.

Erlu var umhugað um að hafa fallegt og snyrtilegt í kringum sig enda bar heimili hennar þess líka glögg merki. Við áttum margar góðar stundir saman, sátum ósjaldan yfir kaffibolla í eldhúsinu í Álfheimum og spjölluðum saman um daginn og veginn. Erlu fannst ómögulegt að eiga ekki alltaf eitthvað gott með kaffinu og var hún ótrúlega dugleg við að baka brúnköku og rúllutertu, strákunum mínum þótti alltaf notalegt að koma til ömmu Erlu og fá kökubita hjá henni.

Við fjölskyldan fórum tvisvar í frí til Spánar með Erlu, ég er mjög þakklát fyrir að hún komst í þessar ferðir með okkur, hefði þó mjög gjarnan viljað hafa þær fleiri. Erla var mjög hraust og talaði oft um það hversu heppin hún var að hafa haft svo góða heilsu í gegnum tíðina, hún varð nánast aldrei veik, þó kom að því að hún greindist með æxli við mænuna fyrir um það bil þremur árum. Hún var oft með mikla verki en hafði nýlega fengið aðstoð við að lina þá, henni virtist líða miklu betur og var farin að gera hluti sem hún hafði ekki treyst sér til í töluverðan tíma.

Ég átti alls ekki von á því að hún færi svo snögglega sem hún gerði, það kom okkur hjónunum því mjög á óvart þegar við fengum hringingu þar sem við vorum stödd erlendis og okkur tilkynnt að Erla væri látin. Ég á eftir að sakna mjög mikið allra góðu stundanna sem við áttum saman, hún var einstaklega þægileg og yndisleg tengdamóðir. Þín verður sárt saknað. Hvíl í friði, elskuleg.

Þín tengdadóttir,

Erla Eyjólfsdóttir.

Elsku amma Erla, sárt þykir mér að hafa ekki geta kvatt þig, mér finnst svo langt síðan við hittumst síðast. Í millitíðinni eignaðist ég strák sem náði ekki að hitta þig og það var bara mánuður í að við kæmum að heimsækja þig. En minningarnar um okkur saman eru margar og hverfa aldrei úr huganum, en sárt er að vita að fleiri sköpum við ekki. Þú varst svo góðhjörtuð og yndisleg og varst alltaf til staðar í Álfheimunum.

Þú varst amma mín sem fylltir mann hlýju og umhyggju og færðir mér alltaf rúllutertu þegar ég kom til þín. Ég mun elska þig alltaf og sakna þín mikið og með kökk í hálsi segi ég bless að eilífu,

Þinn dóttursonur,

Sigfús Gauti, Ragnheiður

og synir í Noregi.

Elsku Erla amma. Mánudaginn 6. september barst mér sú frétt að mín elsku amma væri látin. Það eru svo margar skemmtilegar minningar sem koma upp í hugann á svona kveðjustund.

Okkur langar að senda minni elskulegu ömmu þessar ljóðlínur:

Elskulega amma, njóttu

eilíflega Guði hjá,

umbunar þess, er við hlutum,

ávallt þinni hendi frá;

þú varst okkar ungu hjörtum,

eins og þegar sólin hlý,

vorblómin með vorsins geislum

vefur sumarfegurð í.

Hjartakær amma, far í friði,

föðurlandið himneskt á,

þúsundfaldar þakkir hljóttu

þínum litlu vinum frá.

Vertu sæl um allar aldir,

alvaldshendi falin ver;

inn á landið unaðsbjarta,

englar Drottins fylgi þér.

(Höf. ók.)

Blessuð sé minning þín.

Sigurður Svavar, Tone Lise og börn.

Okkar yndislega amma og langamma er látin, við munum sakna hennar mikið. Við höfum átt margar góðar stundir saman og var hún alltaf tilbúin að aðstoða okkur þegar við þurftum á að halda. Það var ávallt mikil tilhlökkun að fara í heimsókn til ömmu því hún bauð upp á góðar veitingar og uppáhald allra var rúllutertan hennar sem enginn getur gert eins góða.

Dóttir okkar var svo heppin að fæðast á afmælisdegi hennar ömmu og héldu þær saman upp á afmælisdaginn úti í Búlgaríu sumarið 2006, þegar hún varð 80 ára gömul. Okkur þykir sú ferð ómetanleg og eigum við mjög góðar minningar frá henni. Við vorum síðan svo lukkuleg að eiga með henni yndislegan tíma rétt áður en hún féll frá og þökkum við mikið fyrir þann tíma.

Elsku amma og langamma, takk fyrir okkur, við komum til með að sakna þín. Það verður skrítið að koma ekki til þín á jóladag, eins og við vorum vön þar sem þú varst alltaf búin að hafa mikið fyrir því að elda ofan í alla og oft var fjölmennt í þessum jólaboðum. Hvíldu í friði, elsku amma mín, við munum sakna þín mikið.

Erla Gréta, Heimir Þór

og börn.