Kápa Elskar mig – elskar mig ekki
Kápa Elskar mig – elskar mig ekki
Út er komin bókin Elskar mig – elskar mig ekki á vegum Forlagsins. Bókin hefur að geyma sögur sem fjalla um ástina, að vera ástfanginn, elskaður og þora að fylgja hjarta sínu.
Út er komin bókin Elskar mig – elskar mig ekki á vegum Forlagsins. Bókin hefur að geyma sögur sem fjalla um ástina, að vera ástfanginn, elskaður og þora að fylgja hjarta sínu. Sögurnar skrifuðu sextán norrænir höfundar frá átta málsvæðum en þeirra á meðal eru Jónína Leósdóttir og Eiríkur Örn Norðdahl. Sögurnar eru sextán og voru allar skrifaðar sérstaklega fyrir bókina en hún var unnin í samstarfi átta norrænna útgefenda. Böðvar Guðmundsson íslenskaði sögur allra erlendu höfundanna en sögur finnskra, samískra og grænlenskra höfunda voru fyrst þýddar á millimál.