* Rokkhátíðin Rocktóberfest hefst í kvöld á skemmtistaðnum Sódómu en það er útvarpsstöðin X-ið 97,7 sem stendur fyrir henni. Hátíðin stendur í þrjá daga.
* Rokkhátíðin Rocktóberfest hefst í kvöld á skemmtistaðnum Sódómu en það er útvarpsstöðin X-ið 97,7 sem stendur fyrir henni. Hátíðin stendur í þrjá daga. Allar vinsælustu hljómsveitir X-ins troða upp, eins og segir í tilkynningu, og þar kemur einnig fram að bjórverð verði hlægilega lágt. Á hátíðinni koma fram Cliff Clavin, Mammút , Ourlives, Endless Dark, Noise, Ten Steps away, Bloodgroup, Hoffman, Agent Fresco, Vicky, Ultra Mega Technobandið Stefán, Saytan, Vintage, Skorpulifur o.fl. Miðaverð á alla hátíðina er kr. 2.500 í forsölu.