Moriarty? Harris í Mad Men.
Moriarty? Harris í Mad Men.
Ýmsir leikarar hafa verið orðaðir við framhald kvikmyndarinnar Sherlock Holmes , m.a. Noomi Rapace og Stephen Fry, og nú berast þær fregnir að leikarinn Jared Harris muni leika erkióvin Holmes, Moriarty. Harris hefur m.a.
Ýmsir leikarar hafa verið orðaðir við framhald kvikmyndarinnar Sherlock Holmes , m.a. Noomi Rapace og Stephen Fry, og nú berast þær fregnir að leikarinn Jared Harris muni leika erkióvin Holmes, Moriarty. Harris hefur m.a. leikið í þáttunum Mad Men og kvikmyndunum Far and Away , Natural Born Killers og The Curious Case of Benjamin Button . Kvikmyndaritið Empire segir valið á Harris koma á óvart þar sem ýmsar stjörnur hafi verið orðaðar við hlutverkið, m.a. Gary Oldman, Javier Bardem og Daniel Day Lewis. Engin yfirlýsing hefur þó borist frá framleiðanda myndarinnar, Warner Bros., um að Harris verði Moriarty. Robert Downey jr. lék Sherlock Holmes og Jude Law dr. Watson og munu þeir að öllum líkindum endurtaka þann leik.