Hagnaður Iceland Express á árinu 2009 nam 586,6 milljónum króna eftir skatta. Árið áður, 2008, varð tap af rekstri félagsins, um einn milljarður króna og segir í tilkynningu frá félaginu að þar hafi hátt olíuverð ráðið mestu.
Hagnaður Iceland Express á árinu 2009 nam 586,6 milljónum króna eftir skatta. Árið áður, 2008, varð tap af rekstri félagsins, um einn milljarður króna og segir í tilkynningu frá félaginu að þar hafi hátt olíuverð ráðið mestu. „Hér er því um algjöran viðsnúning að ræða hjá félaginu, en þess ber þó að geta að góður hagnaður var á árinu 2007,“ segir ennfremur í tilkynningunni. Bókfært eigið fé í árslok 2009 var jákvætt um 414 milljónir króna.