Ísafjörður Húsakostur skólans.
Ísafjörður Húsakostur skólans.
Menntaskólinn á Ísafirði fagnar 40 ára afmæli sínu um þessar mundir. Af því tilefni verður haldin afmælishátíð í Íþróttahúsinu á Torfnesi laugardaginn 2. október nk. Hátíðahöldin hefjast kl. 14.

Menntaskólinn á Ísafirði fagnar 40 ára afmæli sínu um þessar mundir. Af því tilefni verður haldin afmælishátíð í Íþróttahúsinu á Torfnesi laugardaginn 2. október nk.

Hátíðahöldin hefjast kl. 14. Á dagskránni verður blanda af tali og tónum auk ljósmyndasýningar úr starfi og félagslífi skólans frá upphafi. Boðið verður upp á kaffiveitingar og að lokinni dagskrá verður almenningi boðið að skoða húsnæði skólans. Allir eru velkomnir.

Í tilefni af afmæli skólans var ákveðið að gefa út sögu hans. Til að semja texta bókarinnar var ráðinn Björn Teitsson sagnfræðingur, sem var skólameistari við skólann 1979-2001. Auk meginmáls eru í ritinu skrár yfir nemendur og kennara skólans fram til 2008. Bókina prýða margar myndir, m.a. litmyndir af brautskráðum nemendum 1974-2008. Í rammagreinum eru rakin æviatriði allra skólameistara og ýmissa annarra. Þá er í þó nokkrum rammagreinum birt efni af léttara tagi úr skólalífinu. Bókin verður formlega afhent skólanum á afmælishátíðinni.