Mér finnst rigningin góð, er sungið í dægurlagatexta nokkrum og um að gera að taka sér það viðhorf til fyrirmyndar í rigningartíðinni. Engin ástæða er til að ergja sig á veðrinu frekar en öðru sem við getum ekki breytt, heldur stökkva bara út og njóta.

Eitt af því sem flestir gerðu glaðir í bernsku var að fara út í hellidembu í gúmmístígvélum og hoppa og skoppa í drullupollum. Þetta er hin skemmtilegasta íþrótt og verulega góð útrás fyrir hvers konar innilokaða innipúkagremju.
Útivist fyrir fólk á öllum aldri.