Skuldabréf hækkuðu í verði í gær, en í fyrradag varð nokkur lækkun þegar Hagstofan birti tölur um óbreytta neysluverðsvísitölu og minnkandi 12 mánaða verðbólgu. Hefur vísitalan hækkað um 3,7% síðasta árið.
Skuldabréf hækkuðu í verði í gær, en í fyrradag varð nokkur lækkun þegar Hagstofan birti tölur um óbreytta neysluverðsvísitölu og minnkandi 12 mánaða verðbólgu. Hefur vísitalan hækkað um 3,7% síðasta árið. Skuldabréfavísitala GAM Management, GAMMA: GBI hækkaði um 0,4%, í 15,1 milljarðs króna viðskiptum. Verðtryggða vísitalan, GAMMAi: Verðtryggt, hækkaði um 0,2% í 9 milljarða króna veltu og sú óverðtryggða, GAMMAxi: Óverðtryggt, hækkaði um 0,9% í 4,6 milljarða króna viðskiptum.