George Lucas Heillaður af þrívídd.
George Lucas Heillaður af þrívídd. — Reuters
Leikstjórinn George Lucas segir að allar Stjörnustríðsmyndirnar sex verði gefnar út í þrívídd. Hann greinir frá þessu á heimasíðu Star Wars.

Leikstjórinn George Lucas segir að allar Stjörnustríðsmyndirnar sex verði gefnar út í þrívídd. Hann greinir frá þessu á heimasíðu Star Wars. Fram kemur að Star Wars: Episode I - The Phantom Menace verði gefin út í þrívídd árið 2012, og hinar fimm muni fylgja í kjölfarið. Fram hefur komið í fjölmiðlum að Lucas hafi beðið með að gefa út myndirnar í þrívídd eða þangað til nægilega mörg kvikmyndahús gætu sýnt slíkar myndir.

Þrívíddarmyndir hafa slegið í gegn í kjölfar gríðalegrar velgengni Avatar .