Yfirvofandi 98 fasteignir verða settar á lokasölu í næstu viku.
Yfirvofandi 98 fasteignir verða settar á lokasölu í næstu viku. — Morgunblaðið/ÞÖK
Tölur um nauðungarsölur á Suðurnesjum gefa góða mynd af slæmu ástandinu. Að öllu óbreyttu verða lokasölur á 98 fasteignum í næstu viku. Það er tveimur fleiri eignir en seldar voru á nauðungaruppboði allt síðasta ár.

Tölur um nauðungarsölur á Suðurnesjum gefa góða mynd af slæmu ástandinu. Að öllu óbreyttu verða lokasölur á 98 fasteignum í næstu viku. Það er tveimur fleiri eignir en seldar voru á nauðungaruppboði allt síðasta ár. Uppboð á hvern íbúa á Suðurnesjum eru margfalt fleiri en hjá umdæmi sýslumannsins í Reykjavík, en um miðjan mánuð höfðu nánast jafn margar eignir verið seldar lokasölu á árinu.

Þegar nauðungarsölur á Suðurnesjum eru bornar saman á landsvísu þarf einnig að gæta þess, að í engu tilviki var þar um að ræða frístundahús eða lóð undir frístundahús. Alls eru málin 418 í ár og að baki þeim eru samtals 1.123 nauðungarsölubeiðnir, eða að meðaltali 2,7 í hverju máli.

Þórólfur Halldórsson, sýslumaður í Keflavík, segir málum ekki aðeins hafa fjölgað heldur séu þau mun flóknari en áður. Álagið á starfsfólk sé því gríðarlegt, á sama tíma og krafa er gerð um tíu prósenta niðurskurð á næsta ári. 6

Metár í ár

1.306

heimili og fyrirtæki voru seld á nauðungaruppboði um allt land frá áramótum til 15. september

224

nauðungarsölur fóru fram í umdæmi sýslumannsins í Keflavík á því tímabili