Sá guli Skilar sínu í þjóðarbúið.
Sá guli Skilar sínu í þjóðarbúið.
Aflaverðmæti íslenskra skipa jókst um 24,7% á fyrstu sex mánuðum ársins miðað við sama tímabil í fyrra, eða um rúma 13 milljarða króna. Alls nam það tæpum 68 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins 2010, samanborið við rúma 54 milljarða 2009.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok júní orðið 50,6 milljarðar og jókst um 25,5% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam 40,3 milljörðum.

Verðmæti flatfiskafla nam rúmum 5,4 milljörðum króna í janúar til júní 2010, sem er 5,9% aukning frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 33,2% milli ára og nam rúmum 10,5 milljörðum.