Gunnar Nelson
Gunnar Nelson
Íslenski bardagaíþróttamaðurinn Gunnar Nelson er kominn í efsta sæti á heimslista íþróttavefjarins MMA Planet yfir efnilegustu íþróttamenn í blönduðum bardagaíþróttum.

Íslenski bardagaíþróttamaðurinn Gunnar Nelson er kominn í efsta sæti á heimslista íþróttavefjarins MMA Planet yfir efnilegustu íþróttamenn í blönduðum bardagaíþróttum.

Íþróttavefurinn segir að Gunnar sé nú sá sem þyki mest spennandi og með mesta framtíð fyrir sér. Hann sé „með Renzo Gracie svart belti og hefur lokið öllum átta bardögum sínum. Orðrómur er á kreiki um að öflugustu félögin séu nú farin að sýna honum áhuga.“