Þetta er búið að vera í bígerð í þónokkurn tíma. Ég kom með þessa hugmynd til hennar Sigríðar Margrétar Oddsdóttur, framkvæmdastjóra Skjásins, og hún tók mjög vel í þetta,“ segir Hilmar Björnsson, yfirmaður hinnar nýstofnuðu sjónvarpsstöðvar, Skjár golf.
„Við fórum svo í það að spyrjast fyrir, gera kannanir og annað slíkt til að fá tilfinningu fyrir því hvort grundvöllur væri til þess að reka slíka stöð hér á landi. Það er sífellt meiri áhugi á golfíþróttinni hér og okkur fannst vanta ítarlega umfjöllun um golfið sem áhugasamir geta nálgast á einum stað.“
Og Hilmar varð ekki fyrir vonbriðgum með viðtökurnar.
„Við renndum svolítið blint í sjóinn með þetta en viðtökurnar hafa farið fram úr björtustu vonum. Við buðum upp á foráskrift og þar skráðu sig strax tæplega þúsund manns.“
Áskriftin kostar 2.890 á mánuði og bindi áskrifendur sig í eitt ár fylgja því margskonar fríðindi.
„Fastir áskrifendur okkar fá meðal annars ferðaávísanir upp í golfferðir erlendis, 40% afslætti á völlunum hér heima og 40% fleiri kúlur þegar skotið er úr fötu í Básum svo fátt eitt sé nefnt,“ segir Hilmar.
„Í apríl á næsta ári byrjum við svo að sýna kynningarmyndbönd um fjölda glæsilegra golfvalla víðsvegar um landið til að áhorfendur fái að kynnast fjölbreytileika á völlunum hér heima. Gegn sýningu á þessum myndböndum gefa viðkomandi vellir svo áskrifendum okkar 40% afslátt þegar þeir vilja spila á völlunum.“
Fjölbreytt dagskrá
Hilmar segir stöðina komna til að vera og byrjunarvikan er ekki af verri endanum.„Þetta verður bara veisla,“ segir Hilmar um Ryder-bikarkeppnina sem hefst á morgun.
„Ryder-bikarinn er haldinn annað hvert ár og er hátíð fyrir alla golfáhugamenn. Við sýnum auðvitað beint frá keppninni allan tímann.“
Auk allra helstu golfmótanna verður fréttaþátturinn Golfing World sýndur alla virka daga þar sem hægt er að fylgjast með öllu sem er að gerast í golfheiminum. Sýnd verða viðtöl við bestu kylfinga heims auk þess sem áhorfendur fá að sjá allt það sem gerist á bak við tjöldin á stærstu golfmótunum.
„Við erum jafnframt með myndir frá sögufrægum mótum, sýnum frá Junior Ryder-bikarnum, þar sem unglingar keppa í stað atvinnumanna, og svona mætti lengi telja. Næsta sumar erum við svo að sjálfsögðu opin fyrir spennandi íslenskri dagskrárgerð,“ segir Hilmar.
„Við höfum svo fengið til liðs við okkur landslið lýsenda, þá Úlfar Jónsson, Þorsteinn Hallgrímsson og Edwin Rögnvaldsson sem koma til með að lýsa keppnum hjá okkur og svo bætast fleiri við í þann hóp þegar líða tekur á. Viðbrögðin benda allavega til þess að við séum komin til að vera.“
birta@mbl.is
Helstu mótin í beinni á Skjá golfi
1.-3. október - Ryder-bikarinn
7.-10. október - Alfred Dunhill Links Championship
16.-17. október - Portugal Masters
19.-20. október - Grand Slam of Golf
23.-24. október - Castello Masters
30.-31. október - Andalucia Masters
4.-7. nóvember - World Golf Championship - HSBC
11.-14. nóvember - JBwere Masters
20.-21. nóvember - Hong Kong Open
25.-28. nóvember - Dubai World Championship
PGA Tour byrjar 6. janúar 2011.