Vísitala framleiðsluverðs lækkaði um 0,9% í ágúst frá júlí. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir lækkaði um 3,1% og hafði það áhrif til lækkunar vísitölunnar um 1,1%. Vísitala fyrir stóriðju lækkaði um 0,5%, sem hafði áhrif til 0,2% lækkunar.

Vísitala framleiðsluverðs lækkaði um 0,9% í ágúst frá júlí. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir lækkaði um 3,1% og hafði það áhrif til lækkunar vísitölunnar um 1,1%. Vísitala fyrir stóriðju lækkaði um 0,5%, sem hafði áhrif til 0,2% lækkunar. Vísitalan fyrir matvæli lækkaði um 0,2% og vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 3,1%. Hafði það áhrif til 0,4% hækkunar.

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 1,3% (áhrif til 0,3% hækkunar) milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir lækkaði um 1,5% (-1,2%).

Miðað við ágúst 2009 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 1,8% en verðvísitala sjávarafurða lækkað um 4,8%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju hækkað um 11,5% en matvælaverð hefur hækkað um 1,1%, samkvæmt vef Hagstofu Íslands.