Halldór Runólfsson
Halldór Runólfsson
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað Halldór Runólfsson í stöðu yfirdýralæknis til næstu fimm ára.
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað Halldór Runólfsson í stöðu yfirdýralæknis til næstu fimm ára. Halldór var fyrst skipaður yfirdýralæknir 1997 og aftur við breytta tilhögun 2005 þegar embættið var sameinað Landbúnaðarstofnun. Skipunin núna er í tilkynningu ráðuneytisins sögð samkvæmt lögum um Matvælastofnun. Fékk Halldór skipunarbréfið í hendur fyrir helgi.