Blysför niður Laugaveg.
Blysför niður Laugaveg.
Samstarfshópur friðarhreyfinga stendur fyrir blysför niður Laugaveginn í Reykjavík á fimmtudaginn kemur. Er þetta í 31. skipti sem friðarsinnar efna til slíkrar blysfarar á Þorláksmessu. Safnast verður saman á Hlemmi frá klukkan 17.

Samstarfshópur friðarhreyfinga stendur fyrir blysför niður Laugaveginn í Reykjavík á fimmtudaginn kemur. Er þetta í 31. skipti sem friðarsinnar efna til slíkrar blysfarar á Þorláksmessu.

Safnast verður saman á Hlemmi frá klukkan 17.45 og gangan hefst klukkan 18.00. Í lok göngunnar verður stuttur fundur á Ingólfstorgi.

Slík ganga verður einnig á Ísafirði. Lagt verður af stað frá Ísafjarðarkirkju klukkan 18.00 og gengið niður á Silfurtorg.