Megamind „Handritið er skynsamlega fyndið og myndin á erindi og er besta skemmtun fyrir alla fjölskylduna,“ segir meðal annars í dómnum.
Megamind „Handritið er skynsamlega fyndið og myndin á erindi og er besta skemmtun fyrir alla fjölskylduna,“ segir meðal annars í dómnum.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Teiknimynd með íslensku og ensku tali. Leikstjóri: Tom McGrath. Aðalleikarar: Will Ferrell, Brad Pitt, Tina Faye, Jonah Hill. Bandarísk. 96 mín. 2010.

Teiknimyndir bera greinileg sérkenni kvikmyndaveranna sem framleiða þau. Áhorfandinn ruglar ekki saman mynd frá DreamWorks Animartion, eins og t.d. Megamind , við Disneymynd eða teiknimyndafígúrur frá Fox. Það er viss, örlítið óheflaður andi í DreamWorks-myndunum, eftir Shrek-myndirnar vel að merkja, því þær sem fyrirtækið gerði áður en Skrekkurinn sló í gegn, voru mun bragðdaufari.

Megamind er orðin jólasmellur úti um allar jarðir og ástæðurnar augljósar. Sagan er sterk, fígúrurnar fjölbreyttar og fyndnar, tölvuvinna og raddir (undirr. varð að breyta út af vananum og sjá frumtextann, sem var frábærlega fluttur af Ferrell, Pitt og fleiri góðum), og þrívíddin dæmist talsvert langt yfir meðallagi.

Átökin eru byggð á gömlum og traustum grunni góðs og ills, en handritið er óvenjulegt, fyndið og ekki allt sem sýnist. Titilpersónan, í tískulitnum bláa (eftir Avatar), er illskan uppmáluð og á í útistöðum við hinn notalegri Metró-mann (sem er raddaður af mun hugljúfari Brad Pitt.) Megamind hyggst ná undir sig Metroborg, og það ekki með lýðræðislegum aðferðum. Sér við hlið sækist hann eftir félagsskap Roxanne (Faye), og eru þeir tilburðir litlu huggulegri.

Megamind hefur hreiðrað um sig á tilhlýðilegum stað fyrir illmenni; í yfirgefnu og draslaralegu orkuveri á meðan það fer mun betur um Metrómanninn.

Undir yfirborðinu ríkir önnur og flóknari, ádeilukennd saga, en þeir Megamind og Metrómann eru báðir gestir, munaðarleysingjar frá fjarlægri plánetu þar sem allt var að fara í kaldakol þegar þeir voru á barnsaldri sendir út í geiminn. Verður Metrómaðurinn mun heppnari með lendingarstað; lendir í góðum höndum á meðan Megamind litli er alinn upp af skálkum í fangelsi. Því fer sem fer.

Myndin er gerð af McGrath, sem hefur m.a. sannað getu sína með Madagascar-myndunum, og lætur hlutina ekki vera jafn einfalda og þeir sýnast. Megamind er t.d. ekki nándar nærri jafn klár í sínum egglaga kolli og hann vill vera láta og hann er engan veginn tilbúinn að taka að sér ofurmannshlutverkið sem hann hefur ætlað sér. Það berst samt upp í hendurnar á honum en þá birtast ýmis ljón í veginum og Megamind tekur margar, óvæntar og bráðfyndnar hliðarsveigjur áður en yfir lýkur. Handritið er skynsamlega fyndið og myndin á erindi og er besta skemmtun fyrir alla fjölskylduna.

saebjorn@heimsnet.is

Sæbjörn Valdimarsson

Höf.: Sæbjörn Valdimarsson