Villuljós. S-Allir
Norður | |
♠K104 | |
♥G52 | |
♦872 | |
♣8754 |
Vestur | Austur |
♠653 | ♠G9872 |
♥984 | ♥76 |
♦G1063 | ♦5 |
♣KD9 | ♣ÁG1063 |
Suður | |
♠ÁD | |
♥ÁKD103 | |
♦ÁKD94 | |
♣2 |
Suður opnar á alkröfu, sýnir svo báða litina við hægfara afmeldingum makkers. Á endanum fellst norður á hjartað sem tromplit og þá keyrir suður í slemmu. Vestur spilar út ♣K, en sagnhafi trompar lauf númer tvö.
Þetta er bókarspil: Suður tekur tvisvar tromp, kannar svo tígulinn með tveimur efstu. Hugmyndin er að stinga fjórða tígulinn í borði ef liturinn brotnar 4-1 og sá mótherji sem á einspilið getur ekki trompað. Ekki sennileg lega, en til staðar, einmitt nú.
Allt þetta á vestur að sjá fyrir. Og fyrirbyggja með því að láta háan tígul í ásinn – gosa eða tíu! Sagnhafi breytir þá um áætlun; tekur þriðja trompið, hyggst síðan nota innkomu blinds á ♠K til að svína í tígli ef þörf krefur. En verður fyrir vonbrigðum.