Veðrið Verða hvít eða rauð jól?
Veðrið Verða hvít eða rauð jól?
„Það er mikill munur á veðurspám ennþá, sérstaklega fyrir aðfangadag, það munar nærri tíu stigum á hitanum.
„Það er mikill munur á veðurspám ennþá, sérstaklega fyrir aðfangadag, það munar nærri tíu stigum á hitanum. Það er því enn spurning hvort úrkoman verður snjór eða rigning á aðfangadag, þótt það verði kalt fram að því,“ segir Óli Þór Árnason hjá Veðurstofu Íslands. „Það verður samt svalara um norðan- og austanvert landið, það er eiginlega það eina sem er nokkuð öruggt. En enn er of snemmt að spá um hvít eða rauð jól á sunnan- og suðvestanverðu landinu,“ segir Óli en telur að þetta muni skýrast í kvöld.