Alþingi samþykkti um helgina breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar sem lengir rétt fólks til atvinnuleysisbóta tímabundið um eitt ár, úr þremur árum í fjögur.

Alþingi samþykkti um helgina breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar sem lengir rétt fólks til atvinnuleysisbóta tímabundið um eitt ár, úr þremur árum í fjögur.

Réttur til fjögurra ára greiðslutímabils nær til þeirra sem misstu atvinnu og fengu atvinnuleysisbætur greiddar í fyrsta skipti 1. mars 2008 eða síðar. Lenging greiðslutímabilsins mun auka útgjöld Atvinnuleysistryggingasjóðs en á móti er talið að útgjöld til fjárhagsaðstoðar hjá félagsþjónustu sveitarfélaganna aukist minna en ella. Breytingin er gerð vegna aukins atvinnuleysis.