Jól Það er margt sem gleður um jólin.
Jól Það er margt sem gleður um jólin. — Morgunblaðið/Golli
Já jólin verða komin í lok vikunnar og þá er um að gera að vera undirbúinn. Ekkert stress og streð, bara njóta þessara síðustu daga fyrir áthátíðina miklu. Sama hversu mikið óþol fólk þykist hafa fyrir jólunum komast allir í stemningu þegar þau nálgast.

Já jólin verða komin í lok vikunnar og þá er um að gera að vera undirbúinn. Ekkert stress og streð, bara njóta þessara síðustu daga fyrir áthátíðina miklu.

Sama hversu mikið óþol fólk þykist hafa fyrir jólunum komast allir í stemningu þegar þau nálgast. Það eru hin gleðilegu jólalög, brosandi andlit, jólaljós og hin hátíðlega stemning sem ylja öllum um hjartarætur, jafnvel þeim hörðustu.

Ekkert vera að þykjast vera töff, leyfið ykkur að gleðjast yfir jólunum, þau eru líka bara einu sinni á ári, opnið hjarta ykkar og hleypið hlýjunni inn.