— Ljósmynd/Jóhann Kristjánsson
Gunnlaugur Júlíusson, langhlaupari og hagfræðingur Sambands íslenskra sveitarfélaga, setti í gær nýtt Norðurlandamet í 24 stunda hlaupi þegar hann hljóp rúma 208 kílómetra á hlaupabretti í líkamsræktarstöð World Class í Kringlunni.
Gunnlaugur Júlíusson, langhlaupari og hagfræðingur Sambands íslenskra sveitarfélaga, setti í gær nýtt Norðurlandamet í 24 stunda hlaupi þegar hann hljóp rúma 208 kílómetra á hlaupabretti í líkamsræktarstöð World Class í Kringlunni. Gunnlaugur, sem hér fagnar áfanganum í gær, hóf hlaupið á hádegi á laugardag og á hádegi í gær hafði hann hlaupið 208 km og 760 metra á brettinu. Gamla Norðurlandametið var tæpir 203 km en það setti Daninn Kim Rasmussen árið 2004. Þess má geta að heimsmetið í sólarhringshlaupi á Bandaríkjamaður, að því er kemur fram á vef Gunnlaugs, en það er 257 kílómetrar.