Guðmundur Eggert Stephensen, Íslandsmeistari í borðtennis, hefur samið við hollenska meistaraliðið Zoetermeer og mun leika með liðinu út þetta keppnistímabil. „Ég veit lítið út í hvað ég er að fara.

Guðmundur Eggert Stephensen, Íslandsmeistari í borðtennis, hefur samið við hollenska meistaraliðið Zoetermeer og mun leika með liðinu út þetta keppnistímabil. „Ég veit lítið út í hvað ég er að fara. Ég átti ekki von á því að spila erlendis í vetur en svo kom þetta óvænt upp og ég var fljótur að stökkva á þetta,“ sagði Guðmundur í samtali við Morgunblaðið. 1