Jón Arnór Stefánsson
Jón Arnór Stefánsson
Jón Arnór Stefánsson var stigahæstur hjá liði sínu CB Granada sem tapaði fyrir Lagun Aro 68:75 í spænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik um helgina. Jón skoraði fimmtán stig í leiknum og var stigahæstur annan leikinn í röð.

Jón Arnór Stefánsson var stigahæstur hjá liði sínu CB Granada sem tapaði fyrir Lagun Aro 68:75 í spænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik um helgina. Jón skoraði fimmtán stig í leiknum og var stigahæstur annan leikinn í röð. Jón hefur skarað fram úr í liði Granada að undanförnu og hefur verið stigahæstur í þremur af síðustu fjórum leikjum liðsins í spænsku deildinni sem þykir sú sterkasta í Evrópu. kris@mbl.is