Nauðsyn Góðir skór í ræktina.
Nauðsyn Góðir skór í ræktina.
Nú styttist í janúarútsölurnar og þá er tilvalið að endurnýja æfingagallann. Það hefur kannski legið fyrir lengi og nú er um að gera að leyfa sér að kaupa nýja skó, buxur eða bolinn sem þig hefur langað í lengi.
Nú styttist í janúarútsölurnar og þá er tilvalið að endurnýja æfingagallann. Það hefur kannski legið fyrir lengi og nú er um að gera að leyfa sér að kaupa nýja skó, buxur eða bolinn sem þig hefur langað í lengi. Manni líður alltaf dálítið betur að vera svolítið vel til fara í ræktinni þó að útlitið skipti þar auðvitað ekki öllu máli. En það getur vissulega komið manni vel af stað út í æfingu vetrarins að spranga um á einhverju nýju og fínu. Þá er líka nauðsynlegt að æfingaskórnir séu góðir og ekki úr sér gengnir. Það getur líka vel verið að þig vanti bara nýjan lás á skápinn, vatnsbrúsa eða ný handklæði.