1
1
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
1 Þingmaðurinn Ásbjörn Óttarsson segir íslenskum listamönnum að fá sér almennilega vinnu. Listheimurinn fór á annan endann. 2 Lögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson tjáir sig um muninn á kynjunum á vefsíðunni Bleikt.is.
1 Þingmaðurinn Ásbjörn Óttarsson segir íslenskum listamönnum að fá sér almennilega vinnu. Listheimurinn fór á annan endann.

2 Lögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson tjáir sig um muninn á kynjunum á vefsíðunni Bleikt.is. Spurður að því hver væri „stærsti kostur og ókostur“ kvenfólks svaraði Sveinn m.a.: „Að sama skapi getur það verið þeirra stærsti ókostur þegar þær vantar þennan dýpri skilning á því hvað karlmennirnir eru frábrugðnir; hvað við þurfum mikið að leika okkur og vera með félögunum. Margt í fari kvenna getur verið bæði kostur og ókostur. Auðvitað er það kostur hversu umhugað þeim er að hafa heimilið fínt og börnin vel til höfð, en að sama skapi er það ókostur að þurfa alltaf að vera að blanda karlmanninum inn í þetta.“

3 Hringekjan í Sjónvarpinu. Beinlínis óþægilegt að horfa á þennan þátt á köflum. Brrrrr, kjánahrollur!

4 Gillzenegger segist vilja „kjöta“ Sjón. Það væri forvitnileg sjón. Gillz vill líka fá meðlimi Rithöfundasambandsins í „Burn-partí“ og birta mynd af sjálfum sér berum að ofan framan á Símaskránni. Hugmyndaflug óskast.

5 Sorphirðumaðurinn Michael Carroll sóaði tveggja milljarða króna lottóvinningi á átta árum og fór að því loknu á atvinnuleysisbætur. Peningunum sóaði hann m.a. í fíkniefni og gleðikonur.

6 Foreldrar tóku börn sín úr kaþólskum einkaskóla í Mílanó á Ítalíu þar sem þeim þótti kennslukona í skólanum of kynþokkafull til að geta sinnt starfi sínu, fegurðardrottningin Ileana Tacconelli. Móðir eins barnanna sagði þokka Tacconelli trufla nemendur.

7 Kaupþing var með geymslu í Skútuvogi í Reykjavík þar sem voru bílar, veiðigræjur, tjaldvagnar og fleira sem stjórnendur bankans höfðu aðgang að. Þetta kom fram í skýrslu sem Lilja Steinþórsdóttir, innri endurskoðandi Kaupþings, gaf hjá rannsóknarnefnd Alþingis. Já, flott skal það vera fyrir fína karla.

8 Linda Björg Árnadóttir , fagstjóri fatahönnunarbrautar Listaháskóla Íslands og fatahönnuður, sendi Evu Maríu Jónsdóttur, dagskrárgerðarkonu á RÚV, bréf eftir úrslitakvöld Söngvakeppni Sjónvarpsins og tjáði í því þá skoðun sína að kjólarnir sem hún, Eva María, og Ragnhildur Steinunn klæddust og voru hannaðir af Birtu Björnsdóttur hefðu verið ljótir. Linda sagði að Sjónvarpinu bæri skylda til að sýna ávallt það sem er best væri í menningu, hönnun og listum og hefði brugðist þeirri skyldu sinni. Brrrrrr...

9 Jón Hilmar Hallgrímsson, kallaður Jón Stóri , segir í viðtali við Mónitor að hann hafi komist að þeirri niðurstöðu að gallarnir væru fleiri en kostirnir við kókaínneyslu. Það þarf nú varla mikla rannsóknarvinnu til að komast að þeirri niðurstöðu.

10 Sveitarfélagið Árborg setti nýja kattareglugerð sl. sumar um að kettir í sveitarfélaginu sem færu út úr húsi yrðu að vera í bandi. Kettir eru s.s. hundar í Árborg.

11 Þjóðfundur hinn seinni. Niðurstaða: Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir, perluvinir.