Leikstjórinn Marteinn Þórsson.
Leikstjórinn Marteinn Þórsson.
Frumsýning eða forsýning verður á bíómyndinni Rokland annað kvöld á Sauðárkróki. Myndin var tekin að mestu þar og því fannst aðstandendum við hæfi að sýna hana fyrst þar. En frumsýning á myndinni verður ekki fyrir sunnan fyrr en þann 11. janúar.
Frumsýning eða forsýning verður á bíómyndinni Rokland annað kvöld á Sauðárkróki. Myndin var tekin að mestu þar og því fannst aðstandendum við hæfi að sýna hana fyrst þar. En frumsýning á myndinni verður ekki fyrir sunnan fyrr en þann 11. janúar. Marteinn Þórsson, leikstjóri myndarinnar, segir að það hafi alltaf átt að sýna hana fyrir norðan fyrst. „Svo var þetta hentug tímasetning uppá að hún sé gjaldgeng í Edduna núna í febrúar,“ segir hann. Stórir alþjóðlegir dreifingaraðilar einsog Bavaria í Þýskalandi og Celluloid Dreams hafa sýnt henni áhuga þótt stutt sé síðan hún var kláruð. „Já, ég útskrifaði hana ekki fyrr en 22. desember og er að fara að frumsýna hana núna þann 29. desember,“segir Marteinn hlæjandi.