Hlynur Bæringsson
Hlynur Bæringsson
Sundsvall, lið Hlyns Bæringssonar og Jakobs Sigurðarsonar, vann í gær sinn 20. leik af 21 í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik og er efst í deildinni.

Sundsvall, lið Hlyns Bæringssonar og Jakobs Sigurðarsonar, vann í gær sinn 20. leik af 21 í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik og er efst í deildinni. Í gær lá Uppsala, lið Helga Magnússonar, í valnum, 84:97 en leikurinn var nánast búinn eftir fyrri hálfleik, staðan var þá 37:63. Hlynur spilaði vel fyrir Sundsvall og skoraði 14 stig en Jakob gerði 11. Helgi skoraði 6 stig fyrir Uppsala og hafði frekar hægt um sig en Uppsala er í 5. sæti deildarinnar. omt@mbl.is