Fullorðin Miley Cyrus verður 19 ára á árinu og er því engin barnastjarna lengur. Hér sést hún á MTV tónlistarverðlaununum í Madrid í fyrra.
Fullorðin Miley Cyrus verður 19 ára á árinu og er því engin barnastjarna lengur. Hér sést hún á MTV tónlistarverðlaununum í Madrid í fyrra. — Reuters
Bandaríska tónlistarkonan Miley Cyrus er heldur ósátt við viðtal sem tekið var við föður hennar, Billy Ray Cyrus, fyrir tímaritið GQ. Í því talar Billy Ray afar opinskátt um fjölskyldu sína og segir m.a.

Bandaríska tónlistarkonan Miley Cyrus er heldur ósátt við viðtal sem tekið var við föður hennar, Billy Ray Cyrus, fyrir tímaritið GQ. Í því talar Billy Ray afar opinskátt um fjölskyldu sína og segir m.a. að þátttaka þeirra feðgina í unglingaþáttunum Hannah Montana hafi sundrað fjölskyldunni. Þá hafi frægðin farið illa með dóttur hans og hann óttist að hún fari sömu leið og Anna Nicole Smith, Curt Cobain og Michael Jackson en öll eru þau látin.

Samkvæmt frétt á vefnum Hollywood News munu feðginin ekki talast við og segir þar að Miley hafi hætt samskiptum við föður sinn. Viðtalið mun hafa gert illt verra. Miley mun ekki sátt við fullyrðingar föður síns þess efnis að álagið sem fylgdi gerð sjónvarpsþáttanna hafi leitt til skilnaðar hans við eiginkonu sína.